Spilavinir ehf á Stjörnur.is
Spilavinir ehf 
- Langholtsvegi 126,104 Reykjavík
- Sími:553 3450
- www.spilavinir.is
- spilavinir at spilavinir dot is
Topplistarnir!
Auglýsingar .... þú veist þú vilt skoða þær!

Auglýsingar .... þú veist þú vilt skoða þær!
Til að geta skráð ummæli á vefnum Stjörnur.is þarf að auðkenna sig með Facebook skráningu.
Stjörnur.is fá þá heimild til að sækja nafn, mynd og netfang frá Facebook og nota nafn og mynd til að sýna höfund ummæla.
Netfangið er eingungis notað til að geta sent höfundi tilkynningu um breytingu á ummælum s.s. ef fyrirtæki svarar ummælunum.
Netfang verður ekki undir neinum kringumstæðum afhent óviðkomandi aðilum eða birt.
umsagnir (nýjustu efst)
Ásgerður Inga... 22. mar 2012 21:41
Gott verð-góð þjónusta!
Keypti spil í stórri leikfangaverslun í borginni, fór svo nokkrum dögum seinna og sá að spilið var meira en 1500 krónum ódýrara í Spilavinum.
Verslaði helling hjá þeim í þeirri ferð, 3 pússluspil og 2 spil. Fékk mjög góða þjónustu og leiðbeiningar um hvað væri sniðugt fyrir vissan aldurshóp!!
Mæli hiklaust með Spilavinum og gef þeim 5 stjörnur!
Heba Agneta... 9. feb 2012 21:08
Virkilega þjónustulundaðar og áhugasamar :)
Sigurður Örn Magnason 1. feb 2012 22:05
Bara gaman
Starfsfólkið virðist hafa endalausa þolinmæði fyrir gaurum eins og mér sem spyrja "en þetta spil? en þetta, en þetta...".
Virðast hafa kynnt sér langflest spilin í búðinni og maður gengur alltaf ánægður út.
Bjarni Jónsson 11. Jan 2012 14:38
Úrval og þjónusta til fyrirmyndar
Frábært að hafa búð þar sem fólk leggur sig fram um að veita góða þjónustu. Starfsfólkið þekkir vörurnar vel og getur sagt manni upp og ofan af því hvernig spilin eru sem hjálpar til við val á t.d. gjöfum. Sjálfsagt er hægt að finna eitt og eitt spil ódýrara í lágvöruverslun. Hér vil ég hins vegar kaupa spil.
Arnheiður... 9. Jan 2012 23:01
Frábær búð
Gleymdi að gefs stjörnur
Arnheiður... 9. Jan 2012 22:57
Góð þjónusta
Frábær búð með skemmtilegar vörur.
Rúnar Þór Þórarinsson 9. Jan 2012 14:46
Frábær búð, frábær þjónusta
Það er hreinlega ekkert slæmt hægt að segja um þessa búð, bara góða hluti. Starfsfólkið þekkir spilin sem þau selja út og inn, óhætt að spyrja og þið fáið einlæg svör.
Finnur Palmi... 4. Jan 2012 19:31
Bestir í spilum
Óþarfi að sækja spil eitthvert annað.
Mæli sérstaklega með ráðgjöf frá yngri "starfsmönnum" þegar velja á púsl og þessháttar.
Salóme Mist... 24. des 2011 00:08
Skemmtilegasta búðin á höfuðborgarsvæðinu!
Ég veit ekki um neina búð sem skemmtilegra er að koma í en Spilavini. Þær sem vinna þarna vita allt um spilin og það er mjög gott að fá þær til þess að hjálpa sér að velja gjafir :) Svo pakka þær líka svo flott inn fyrir mann ;)
Dísa... 18. nóv 2011 13:22
Spilahimnaríki
Sóley Birgisdóttir 17. nóv 2011 22:21
Skemmtilegar vörur og frábær þjónusta
Mæli með heimsókn í Spilavini, skemmtilegar vörur á góðu verði. Frábær þjónusta, kennsla á staðnum, einnig hægt að fá þær stöllur í heimsókn á spilakvöld, þar sem þær kenna á hin ýmsu spil, mæli sannarlega með því.
Sigurður Hjaltested 25. okt 2011 15:16
Frábær þjónusta!!
Stelpurnar eru alltaf tilbúnar að kenna manni spilið áður en maður fer heim, einstaklega vinalegt starfsfólk og frábært úrval fyrir spilasjúka :)
Rut Garðarsdóttir 27. sep 2011 11:51
Einstök og persónuleg þjónusta hjá Spilavinum.
Mín uppáhaldsbúð til að finna gjafir handa vinum og fjölskyldum eða já bara handa sjálfri mér :)
Þær hafa alltaf nægan tíma til að aðstoða mann við að finna akkurat réttu gjöfina!
Heiðdís Rut... 27. sep 2011 10:46
Besta Búðin!
Frábær verslun þar sem hægt er að fá gríðarlegt úrval skemmtilegra spila! Starfsfólkið er yndislegt með frábæra þjónustulund :)
Edda Sigurdís... 26. sep 2011 14:35
Frábær búð..
Alltaf jafn frábært að koma í Spilavini, gott úrval spila og ekki spillir þjónustan fyrir. Versla iðulega afmælis- og jólagjafir þarna, og oftast læðist eitt (eða fleiri) spil með á heimilið...
Stefán Frá... 24. sep 2011 20:09
Gott úrval og glimrandi þjónusta.
Það er mjög gaman að kíkja þangað með börnin og skoða úrvalið af raðspilum og spilum fyrir yngri borgara og alltaf hægt að prófa eitthvað nýtt. Svo eru fimmtudagsspilakvöldin frábær.
Narfi Jónsson 24. sep 2011 14:29
Frábært úrval og þjónusta og spilakvöldin eru mjög gott framtak.
Tobba Olafsdottir 19. sep 2011 21:06 Smástirni
Góð og skemmtileg þjónusta
Nemendafélagið Tumi 6. sep 2011 19:15
Tumi elskar Spilavini :)
Tinna Heimisdóttir 6. sep 2011 19:01
Skemmtilegra en að versla skó! :)
Daddi Gudbergsson 6. sep 2011 11:55 Smástirni
Bara algjörlega snilld og hrein unun að fara þarna með börn
Halldóra Ósk... 17. ágú 2011 20:49
Spilavinir
Uppáhaldsbúð fjölskyldunnar, ótrúlega áhugasamt og skemmtilegt starfsfólk og frábært úrval. Við kaupum reglulega spil og verðlaun fyrir frumburðinn og gjafir fyrir vini og vandamenn.
Takk fyrir :)
Margrét... 17. ágú 2011 19:09
Frábær sérverslun með mikið úrval og góð verð.
Er mikið fyrir að spila og hef keypt öll mín spil í Spilavinum frá því verslunin opnaði. Frábært að fá að prófa spilin og fá heiðarlegt mat frá starfsfólki á því sem er í boði. Spilavinir fá tvímælalaust 5 stjörnur frá mér og ekki síður börnunum mínum sem finnst engin verslun skemtilegri.
Takk fyrir :)
Karólína Óskarsdóttir 17. ágú 2011 15:12 Stórstjarna
Get ekki haldið jól án Spilavina!
Ég hef keypt mér (og handa öðrum) ótal mörg spil í Spilavinum því hvergi annarsstaðar á Íslandi er til svo mikið úrval af spilum á einum stað. Starfsfólkið er mesta spilaáhugafólk sem ég hef kynnst. Þau víla það ekki fyrir sér að vippa upp spilaborðum og leyfa manni að prófa. Spilavinir fá 5 stjörnur frá mér fyrir góða þjónustu og mikið úrval!
Takk fyrir hrósið :)