Nauthóll bistro

Nauthólsvegi 106, 102 Reykjavík

Kennitala: 470509-0230

Lokað | Opnar 11:00

Nauthólsvegi 106, 102 Reykjavík

Nauthóll bistro

Sms

Hringja

Tölvupóstur

Lokað | Opnar 11:00

Um okkur

Veitingastaðurinn Nauthóll nýtur sérstöðu sem fáir veitingastaðir á höfuðborgarsvæðinu geta státað af en hann býr að frábærri staðsetningu í nágrenni við helstu útivistarperlur höfuðborgarsvæðisins, Nauthólsvík og Öskjuhlíð.

Þeirri nálægð fylgir ósjálfrátt einhver bjartur, heilnæmur og fallegur andi og við leggjum sérstaka áherslu á létt og notalegt andrúmsloft á staðnum. Metnaður okkar liggur í fersku, fjölbreyttu og vönduðu hráefni og allur matur er lagaður frá grunni.

Við erum meðvituð um umhverfisvernd og sjálfbærni og kaupum allt sem hægt er beint frá býli. Nauthóll er fyrsta svansvottaða veitingahúsið á Íslandi. Svanurinn er opinbert norrænt umhverfismerki. Með því að velja Svansmerkta vöru og þjónustu stuðlar þú að betra umhverfi og bættri heilsu fyrir þig og þína, án þess að fórna gæðum.

        

     

Já notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Já uppfært persónuverndarstefnu sína. Nánar um stefnuna og vefkökur hér.
Samþykkt