Markmið okkar er að allir landsmenn heyri vel

Heyrn ehf

Hlíðasmára 19 2. hæð, 201 Kópavogi

Kennitala: 590307-0920

Lokað

Hlíðasmára 19 2. hæð, 201 Kópavogi

Heyrn ehf

Sms

Hringja

Tölvupóstur

Lokað
  • - á þriðjudögum er opið lengur ef þörf er á

Upplýsingar

Heyrnarþjónusta

Heyrn ehf - Hlíðasmára 19 - 201 Kópavogi
www.heyrn.is         heyrn@heyrn.is


Opið er virka daga frá kl. 9 til 16:30 - Ef með þarf þá er opið lengur suma þriðjudaga. 

Tímapantanir eru í síma 534 9600 eða á heyrn@heyrn.is


Heyrnarþjónusta

 

Hjá Heyrn er veitt alhliða þjónusta til að bæta úr heyrnarskerðingu undir faglegri ábyrgð Ellisifjar Björnsdóttur, heyrnarfræðins.

Starfsfólk Heyrnar leggur sig fram um að veita sem besta þjónustu og allur aðbúnaður og mælitæki eru ný og fyrsta flokks.

Í boði er fjölbreytt úrval danskra, gæðaheyrnartækja sem eiga að uppfylla þarfir flestra sem þurfa á heyrnartækjum að halda.

 

 


 

 

Fagleg heyrnarþjónusta með það að markmiði að allir landsmenn heyri vel.

Margir taka ekki eftir því að heyrnin skerðist og þeir eiga einnig erfitt með að viðurkenna það m.a. vegna þess að það gerist smámsaman. Oft uppgötvar fólk heyrnarskerðingu vegna ábendinga frá öðrum. Eftirfarandi spurningar geta hjálpað þér við að taka ákvörðun um hvort ástæða sé til að fara í heyrnargreiningu

  • Hváirðu oft?
  • Finnst öðrum að þú stillir útvarpið eða sjónvarpið of hátt?
  • Finnst þér hljóð lágvær og að aðrir muldri þegar þeir tala við þig?
  • Hefurðu són í eyrunum?
  • Heyrirðu illa þegar þú talar í símann?
  • Áttu erfitt með að taka þátt í samtali þar sem er hávaði eða margmenni?
  • Hefurðu verið í miklum hávaða t.d. í vinnunni?
  • Áttu auðveldara með að skilja karlaraddir en kvennaraddir?
  • Heyrirðu illa í dyrabjöllunni og símanum?
  • Veldur það þér vandræðum að missa úr því sem sagt er þegar þú hittir ókunnuga?
  • Ferðu sjaldan á mannamót vegna þess að þú átt erfitt með að ná því sem um er talað?
  • Veldur heyrnarskerðingin því að þú talar minna við vini og þína nánustu en þú gjarnan vildir?
  • Veldur það þér depurð að þú heyrir ekki vel?
  •  

Ef þú svarar játandi einhverjum ofantalinna spurninga þá átt þú ef til vill við heyrnarskerðingu að stríða og þá væri gott að fá úr því skorið með heyrnargreiningu.

Hjá Heyrn færðu greiningu, ábendingar um ráð við heyrnarskerðingu og tilboð um lausn sem vonandi hentar þér.

Lífsstíll og hljóðumhverfi hafa áhrif á hvaða heyrnartæki er hentugast að velja fyrir hvern og einn. Sá sem áttar sig á í hverskonar hljóðumhverfi hann hrærist og hvaða kröfur hann gerir á auðveldar með að velja sér, með aðstoð heyrnarfræðings, heyrnartæki sem henta. Heyrn er með allar gerðir af heyrnartækjum frá ReSound. Einnig er í boði þráðlaus aukabúnaður og fyrir þá sem hafa áhuga á tækninýjungum er vert að nefna að það er hægt að stilla heyrnartækin í Appinu.

 

Heyrðu umskiptin – Fáðu heyrnartæki til reynslu

Já notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Já uppfært persónuverndarstefnu sína. Nánar um stefnuna og vefkökur hér.
Samþykkt