Kennitala: 661082-0629
661082-0629
Fálkinn Ísmar er...
þjónustu- og tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í vélahlutum, véltæknivörum, raftæknivörum, hátæknivörum líkt og mælitækjum, vélstýringum sem nýta sér GPS tækni, lasertæki, búnað til sjómælinga, hitamyndavélar, fjarskiptabúnað, loftræsibúnað og hússtjórnarkerfi. Fyrirtækið rekur verslun og þjónustuverkstæði að Dalvegi 10-14 í Reykjavík.
Fálkinn Ísmar stefnir að því að veita viðskiptavinum sínum ætíð þá þjónustu og öryggi í viðskiptum sem best getur verið og á samkeppnishæfu verði. Til að ná þessu markmiði er reynt að bjóða einvörðungu vörur sem hægt er að fá bestar á hverju sviði og að hafa jafnframt á að skipa hæfu og vel þjálfuðu starfsfólki viðskiptavinum til ráðgjafar og þjónustu.
Fyrirtækið
Verslun, þjónustuverkstæði og skrifstofa Fálkans eru að Dalvegi 10-14 í Reykjavík.
Verslun
Verslunin skiptist í þrjú megin þjónustusvið, sem eru: Vélavörur, Raftæknivörur, Hita- og loftræstivörur og Trimble, talstöðvar, umferðaöryggi og hitamyndavélar.
Vélavörur
Helstu vöruflokkar eru: Legur, Hjöruliðskrossar, Ásþétti, Kolþétti, Viftu- og kílreimar, Reimskífur, Drif- og flutningskeðjur, Tannhjól, Ástengi, Kopafeiti, Bíllakk, Pakningarefni, Legulím, Dósaborar, Húsgagna- og vagnhjól, Snekkjudrif, Lokar, Drifbúnaður fyrir loka, Gufugildrur, Gufulokar, Gufustjórnbúnaður, Miðflóttaaflsdælur, Brunndælur, Slógdælur, Snigildælur, Skömmtunardælur, Skólphreinsibúnaður og Fiskmjölsbúnaður.
Raftæknivörur
Helstu vöruflokkar eru: Rafmótorar, Gírmótorar, Spólurofar, Yfirálagsvarnir, Hraðabreytar, Mjúkræsar, Hnappar, Hnappabox, Skynjarar, Fótósellur, Iðntölvur, Sjálfvör, Tímaliðar, Aflrofar, Straumskinnur, Veggskápar, Töfluskápar, Fótrofar, Bindiefni, Spennugjafar, Baðviftur, Hitablásarar, Ampertangir, Mælar, Umferðarljós / jarð-gagnaljós, Rakamælar
Hita- og loftræstivörur
Helstu vöruflokkar eru: Stokkablásara, Rörablásarar, Boxblásarar, Axialblásarar, Þakblásarar, Iðnaðarblásarar, Bílastæðablásarar, Reykblásarar, Loftræsisamstæður, Rakatæki, Rakakútar, Ozone tæki, Hitanemar, Þrýstinemar, CO nemar, Rakanemar, Útsogsventlar, loftdreifarar, álbarakar.
Trimble, talstöðvar, umferðaöryggi og hitamyndavélar
Helstu vöruflokkar eru Trimble, Alstöðvar, GPS, GPS Tæki, Fjarlægðarmælar, Vélstýringar, Vélstýring, Ýtukerfi, Gröfukerfi, Byggingalaser, Laser, Mælitæki, Sjómælingar, Skanner, Talstöð, Talstöðvar, Tetra, Motorola, Umferðaöryggi, Vegrið, Keilur, Ljósaskilti, Blikkljós, FLIR, Hitamyndavél, Öryggi, Vasaljós, Vinnuljós, Þrífætur.
Þjónustuverkstæði
Þjónustuverkstæðið er sérhæft rafvélaverkstæði, sem veitir viðgerðarþjónustu fyrir söluvörur Fálkans Ísmar og annast jafnframt allar almennar rafvéla- og rafeindaviðgerðir.
Skrifstofa
Skrifstofa Fálkans Ísmar sér um símsvörun, innflutning, bókhald, rekstur upplýsingakerfa og fjármál fyrirtækisins, þar með talið innheimtu og greiðslu reikninga.