Eignaumsjón hf

Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík

Kennitala: 501000-3020

Lokað | Opnar 09:00

Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík

Eignaumsjón hf

Sms

Hringja

Tölvupóstur

Lokað | Opnar 09:00

Upplýsingar

20 ára þekking og reynsla í rekstri húsfélaga og atvinnufélaga

Eignaumsjón hf. er umsvifamesta fyrirtæki landsins í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fasteigna og bæði brautryðjandi og leiðandi fyrirtæki í þessari þjónustu hér á landi. Fyrirtækið var stofnað haustið 2000 á grundvelli félagsins HÚSRÁÐ og býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu í rekstri og umsjón fjöleignarhúsa, bæði atvinnu- og íbúðarhúsnæðis, eftir 20 ára starfsemi.

Eignaumsjón getur annast allan daglegan rekstur húsfélaga, s.s. allt bókhald, greiðslur reikninga og innheimtu, útvegun iðnaðarmanna og þjónustuaðila við húfsfélög, ásamt öflun tilboða í viðhaldsverkefni stór sem smá.  Eignaumsjón sér einnig um hús- og aðalfundi húsfélaga og atvinnufélaga, bæði undirbúning, fundarstjórn og fundarritun. Jafnframt býður Eignaumsjón upp á fjölbreytta þjónustu fyrir leigufélög, bæði rekstrar- og leiguumsjón, og húsumsjón fyrir hús- og rekstrarfélög sem það kjósa.

Betri kjör í krafti stærðarinnar

Markmið Eignaumsjónar er að veita framúrskarandi þjónustu og spara viðskiptavinum sínum kostnað við bæði húsfélagaþjónustu banka, ítrekunargjöld og þóknanir vegna gjaldkerastarfa, bókhalds, endurskoðunar og fleiri rekstrarþátta, svo ekki sé minnst á tímasparnaðinn og hagræðið fyrir stjórnir húsfélaga!

Afsláttarsamningar í krafti markaðsstærðar Eignaumsjónar geta líka skilað húsfélögum og eigendum íbúða í viðkomandi húsfélögum umtalsverðum sparnaði; af smásöluverði raforku hjá HS Orku, öryggisþjónustu Securitas eða Öryggismiðstöðvarinnar og lögfræðiþjónustu hjá Lögborg lögfræðiþjónustu. Margra ára samstarf við valda þjónustu- og framkvæmdaaðila tryggir einnig viðskiptavinum Eignaumsjónar bestu kjör hjá viðkomandi þjónustuaðilum, s.s. hjá sorp- og ræstingarfyrirtækjum, iðnaðarmönnum, þjónustuaðilum með hleðslustöðvar rafbíla og fleirum.

Húsbókin – bætt þjónusta við stjórnir og eigendur

Húsbókin, áður MÍNAR SÍÐUR, er endurbætt útgáfa af rafrænni þjónustu- og upplýsingagátt á heimasíðu Eignaumsjónar fyrir eigendur húsfélaga í bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Innskráning er í gegnum www.island.is með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Notandi er skráður með kennitölu greiðanda og/eða eiganda. Í húsbókinni er leitast við að safna saman og gera aðgengilegar upplýsingar um viðkomandi húsfélag, s.s. eignaskiptasamning, húsreglur, viðhaldssögu og annað það sem gagnast bæði eigendum og húsfélaginu. Þar geta eigendur og stjórnir jafnframt nálgast fjárhagslegar upplýsingar í rauntíma – með einum smelli!

  • Stjórnarmenn sjá m.a. daglega fjárhagsstöðu húsfélagsins, stöðu bankareikninga, útistandandi húsgjöld/framkvæmdagjöld, stöðu innheimtukrafna og eftirlitsskýrslur húsumsjónar, ef sú þjónusta er nýtt.
  • Eigendur/íbúar sjá m.a. greiðsluupplýsingar sínar/húsgjöld (greiðsluseðla og kröfusögu), fundargerðir, ársreikninga og önnur gögn húsfélagsins.

 

Sérhæft starfsfólk og skilvirk upplýsingagjöf

Hjá Eignaumsjón starfar vel menntað og þrautreynt starfsfólk, þ. á m. vanir bókarar og gjaldkerar, viðskiptafræðingar og rekstrarfræðingur, hagfræðingur, byggingaverkfræðingur og smiðir sem, sem tryggir að húsfélagið er í öruggum höndum.

Skrifstofa Eignaumsjónar og fundarsalir eru á Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík. Þjónustuverið er opið milli kl. 9-16 mánudaga til fimmtudaga og kl. 9-15 á föstudögum. Hægt er að hringja í síma 585-4800, senda tölvupóst á thjonusta@eignaumsjon.is eða hafa samband með netspjalli á www.eignaumsjon.is.

  • Gildi Eignaumsjónar eru gott viðmót – þekking – skilvirkni
Já notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Já uppfært persónuverndarstefnu sína. Nánar um stefnuna og vefkökur hér.
Samþykkt